Könnun

Hvađa teiknimynd er bestust ?

Auglýsing

Klukkan

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Komin ný síđa

13. ágúst 2008 klukkan 00:15
Hellú
Fjölskyldan hefur ákveðið að opna nýja síðu, slóðin er www.123.is/solanna
Tékk it out
radioactive dudes

Kom prinsessa 15.07.08

17. júlí 2008 klukkan 18:58
Hellúhellú.
Loksins, loksins er prinsessan komin í heiminn. Skvísan er auðvita alveg fullkomin enda komin af svo fallegu fólki ;) Hún var 54 cm, 16,5 mörk og höfuðmálið var 37,5 cm. Hún er rosalega vær og dugleg að drekka og öllum heilsast rosalega vel í sólinni :D

3. dagar framyfir

04. júlí 2008 klukkan 21:15
Hellúhellú
Long time no blogg
Við fórum í okkar síðust mæðraskoðun í morgun og eins og venjulega kom hún auðvita vel út. Seinnipartinn fór tilvonandi móðirin svo í meðgöngunudd sem er ekki að kveikja á neinu ennþá allaveg.
Á mánudaginn verður svo kíkt í kúluna og skoðað hvort þurfi að fara setja allt í gang eða halda áfram að bíða *dæs*
Tilvonandi móðir og faðir eru auðvita alveg að deyja úr spenningi og allt er orðið löngu tilbúið á þessu heimili.
Komum með fréttir þegar við fréttum eitthvað.
Kossar og knús

Til hamingju međ daginn :D

26. maí 2008 klukkan 17:05

Þeir eiga afmæli í dag,
þeir eiga afmæli í dag,
þeir eiga afmæli í daaaaag,
þeir eiga afmæli í dag.

Systursynir okkar þeir Ævar 21 árs og Jason Daði 8 ára eiga afmæli í dag.
Innilega til hamingju með daginn strákar *kossar og knús*

Í tilefni af deginum set ég inn eitt af æðislegu myndböndunum af Jason Daði af youtube hérna inn. Þetta er eitt af uppáhaldslögunum hans:

http://uk.youtube.com/watch?v=jZT8d-Q7uDE

Meira en hálfnuđ

22. febrúar 2008 klukkan 18:47
Helló fólk.
Long time no blogg Glottandi
Ætli það komist nokkuð margt annað frá okkur þessa dagana en fréttir af litla bumbubúanum *kútsý kútsý*
Við erum semsagt búin að fara í 19 vikna sónarinn sem var æðislegt, krílið hoppaði og skoppaði. Kvennsjúkdómalæknirinn var samt rosalega rólegur og okkur fannst við ekki fá neitt æðislega mikið af upplýsingum hjá henni. Þegar hún var búin að skoða allt og taka fullt af myndum fyrir sig var komið að því að foreldrarnir fái myndir, krílið var auðvita löngu farið að sofa og vildi ekkert hreyfa sig fyrir myndatökuna þannig að við urðum að láta okkur duga mynd af hryggnum og við hefðum viljað miklu fleirri myndir. Svo var okkur flýtt um nokkra daga og er áætluð koma krílisins núna 1. júlí
Við lentum svo í að það byrjaði örlítið að blæða síðustu helgi, komin þá 20v.5d. og við fórum auðvita í algeru móðursýkiskasti uppá spítala sem var svo eitthvað sem þurfti ekkert að hafa áhyggjur af. Það var kíkt á krílið og allt þar í kring til að gang úr skugga um að allt væri eins og það ætti að vera. Auðvita fengum við rosalega sæta mynd af krúttinu sem lítur eiginlega út eins og geimvera á myndinni Hlæjandi
Í gær vorum við gengin 21v.2d. og tilvonandi faðirinn fékk í fyrsta skipti að finna fyrir hreyfingum. Óli ljómaði allur í framan þegar hann fann litla krílið sitt í líkamsræktinni.
Búin að setja inn myndir af krílinu og þarf að henda inn myndum sem fyrst af bumbunni. Endilega að kvitta í gestó.
Kossar og knús

Frétt ársins

09. janúar 2008 klukkan 23:58
Fallega parið er að verða mamma og pabbi næsta sumar, nánar tiltekið 6. júlí Hlæjandi
Við höfum ákveðið að reyna bara að halda okkur við þá dagsetningu því þá er kennitala krílisins 060708 sem er bara assvíti flott Glottandi
Við erum búin að fara í hnakkaþykktamælinguna sem kom mjög vel út og fengum myndir sem eru í myndaalbúminu. Hnakkaþykktarmælingin var á aðfangadag og Anna hélt að hausinn myndi detta af henni því hún brosti allan hringinn þann daginn. Krílið hoppaði og skoppaði lengi vel í skoðuninni en svo veifaði það hendinni, hvíldi sig og vildi eiginlega ekkert hoppa meira eftir það. Þetta var bara fallegasta sjón.
Fyrsta mæðraskoðun var svo í gær þegar við vorum komin 14 vikur og 2 daga á leið og svo er blóðprufan á morgun. Allt kom vel útúr mæðraskoðuninni og það er einfaldlega ekki hægt að fá leið á því að heyra hjartsláttinn.
Við erum að springa úr stolti og getum varla beðið eftir litla krílinu okkar.
Kossar og knús
Verðandi foreldrar
a.k.a.

Prinsinn

21. nóvember 2007 klukkan 11:21

Ég var að skoða bloggið hjá Stefí skvís og hún var að benda á próf, ákvað að taka það og leyfa ykkur að sjá niðurstöðurnar.


Þú fellur fyrir prinsum.



Sé karlkynið flokkað í prinsa, froska, proska og frinsa er ljóst að þú laðast að kóngi dýraríkisins, prinsinum. Þráðbeinar, hvítar tennur hans skína jafnskært og gljáfægð kórónan og fáir geta staðist íþróttamannslegan vöxt hans. En ekki er allt gull sem glóir, oft er flagð undir fögru skinni, dæmdu ekki bókina eftir kápunni (allt er þegar þrennt er).

Prinsinn er vissulega sjarmör. Hann gleymir ekki afmælisdeginum þínum, brúðkaupsdeginum eða jólagjöfinni. Þegar maður er í för með prinsinum þarf ekki að hafa áhyggjur af því að hurð fletji út á manni andlitið eins og þegar farið er út með froski - prinsinn heldur dyrunum opnum eins og sönnum herramanni ber að gera. Auk þess skilur prinsinn aldrei eftir sig skítuga táfýlusokka á stofugólfinu. Þvert á móti. Hann er lipur með kústinn og veigrar sér ekki við heimilisstörfum. Hann á það meira að segja til að hrista fram úr erminni heimatilbúna, þriggja rétta máltíð - án þess að blása úr nös.

En því miður er prinsinn mjög meðvitaður um eigið ágæti. Ekki láta það koma þér á óvart þótt aðgangur þinn að speglinum minnki ákveðir þú að eyða lífinu með prinsi. Prinsinn á það nefnilega til að standa löngum stundum fyrir framan hann, hnykla vöðvana og syngja lagið "I'm too sexy" með Right Said Fred: "I'm too sexy for my shirt, too sexy for my shirt. So sexy it hurts." Hárþurrkuna og hársléttarann þinn munt þú ekki lengur fá að hafa út af fyrir þig og ekki láta þér bregða þegar andlitskremið þitt er skyndilega búið. Prinsinn þarf jú að viðhalda fegurð sinni og æsku. Síðast en ekki síst skaltu búa þig undir að vera ávallt í öðru sæti í lífi prinsins, því skotnastur er hann í sjálfum sér. (Froskurinn hljómar ekki sem svo slæmur kostur núna!)
 


http://www.dramadrottning.com">Fellur þú fyrir prinsum eða froskum?

Nýr fjölskyldumeđlimur

10. nóvember 2007 klukkan 17:54
Við fórum að hugsa útí að okkur langaði í annan ferfættling, eftir smá pælingar ákáðum við að okkur langaði í labrador og viti menn í dag bættist nýr fjölskyldumeðlimur í hópinn. Hann er fæddur í byrjun september og á mömmu á Akureyri. Þetta er hann Zero og hann er auðvita fallegasti hundur í heimi *stolt, stolt*
Myndir af beautyinu í möppunni myndir
 

05. nóvember 2007 klukkan 12:06

Helgin var rosalega róleg hjá okkur. Á föstudaginn fengum við hana Flugu í heimsókn og hún fer heim á morgun, Mína kannski ekki per ánægð með að það sé hundur í húsinu Hlæjandi Á föstudaginn kíktum við til Binna og spiluðum póker, sem klikkar auðvita aldrei. Óli fór og borðaði gæs með Binna og Anna smakkaði svo bara þegar hún kom um 12 leytið, hann Binni er alger snilli í eldhúsinu.......... ég fæ alveg vatn í munninn við tilhugsunina. Anna er að reyna að vera dugleg að læra og Óli fer í sveitina að gera sveitastörfin

Set inn eitt sveitavidjó, reyndar ekki Óli en ég efast ekki um að hann sé svona duglegur Glottandi

Nýjar myndir

01. nóvember 2007 klukkan 19:46
enjoy Koss